Hjálparsveitin Dalbjörg hefur nú fest kaup á tveimur nýjum vélsleðum af gerðinni Arctic Cat Crossfire 8 Sno Pro. Eldri sleðarnir sem sveitin átti eru þegar seldir og hefur vinnan við sölu eldri sleðanna og kaup þeirra nýju gengið hratt og vel með hjálp góðra manna. Í dag koma nýju sleðarnir í hús og vinnan við að gera þá útkallshæfa fer á fullt.
Á myndinni sjást tveir stjórnarmenn Dalbjargar taka formlega við sleðunum úr höndum Péturs frá Arctic Sport innflutningsaðila Arctic Cat, og Birkis frá K2M sem er umboðsaðili Arctic Cat á Akureyri.
|