Arctic Sport
untitled-3.jpg

2010 sleðarnir prufukeyrðir PDF Prenta Netfang
Við fórum norður til Akureyrar um liðna helgi 16.- 18. janúar og tókum með okkur þrjá sleða af 2010 árgerðinni af Arctic Cat M8 sno pro, M8 HCR og Crossfire 8 sno pro Limited, til reynslu aksturs.  Það er eins og flestir vita frekar "snjólétt" á landinu og töldum við helst von að finna snjó norðan heiða.  Það var snjór fyrir norðan en færið var ansi hart, þó fundum við svæði þar sem var hægt að taka á sleðunum.  Það er skemmst frá því að segja að við urðum ekki fyrir vonbrigðum með sleðana, þeir voru FRÁBÆRIR og er ekki hægt að lýsa með orðum muninum á eldri sleðunum og þeim nýju.  Aflið og hvernig þeir svara um leið og gefið er inn, fjöðrunin og ásetan er það sem mest munar um.  Vonandi fer að  koma snjór þannig að hægt verði að vera með reynsluakstur fyrir áhugasama, við látum vita hvernig því verður háttað um leið og kemur færi.  Kveðja Gunnar og Pétur.akureyri_17.01.10_007.jpg
 

Arctic Sport | Höfðabakka 3 | 110 Reykjavik | Tel: +354 578-0820 | Tel: +354 578-0822 | arcticsport (at) arcticsport.is