Arctic Sport
untitled-1.jpg

Fréttir
Nýjir Arctic Cat PDF Prenta Netfang

Hjálparsveitin Dalbjörg hefur nú fest kaup á tveimur nýjum vélsleðum af gerðinni Arctic Cat Crossfire 8 Sno Pro. Eldri sleðarnir sem sveitin átti eru þegar seldir og hefur vinnan við sölu eldri sleðanna og kaup þeirra nýju gengið hratt og vel með hjálp góðra manna. Í dag koma nýju sleðarnir í hús og vinnan við að gera þá útkallshæfa fer á fullt.

Á myndinni sjást tveir stjórnarmenn Dalbjargar taka formlega við sleðunum úr höndum Péturs frá Arctic Sport innflutningsaðila Arctic Cat, og Birkis frá K2M sem er umboðsaðili Arctic Cat á Akureyri. afhending.jpg

 
2010 sleðarnir prufukeyrðir PDF Prenta Netfang
Við fórum norður til Akureyrar um liðna helgi 16.- 18. janúar og tókum með okkur þrjá sleða af 2010 árgerðinni af Arctic Cat M8 sno pro, M8 HCR og Crossfire 8 sno pro Limited, til reynslu aksturs.  Það er eins og flestir vita frekar "snjólétt" á landinu og töldum við helst von að finna snjó norðan heiða.  Það var snjór fyrir norðan en færið var ansi hart, þó fundum við svæði þar sem var hægt að taka á sleðunum.  Það er skemmst frá því að segja að við urðum ekki fyrir vonbrigðum með sleðana, þeir voru FRÁBÆRIR og er ekki hægt að lýsa með orðum muninum á eldri sleðunum og þeim nýju.  Aflið og hvernig þeir svara um leið og gefið er inn, fjöðrunin og ásetan er það sem mest munar um.  Vonandi fer að  koma snjór þannig að hægt verði að vera með reynsluakstur fyrir áhugasama, við látum vita hvernig því verður háttað um leið og kemur færi.  Kveðja Gunnar og Pétur.akureyri_17.01.10_007.jpg
 
Sleðarnir komnir PDF Prenta Netfang

akureyri_17.01.10_010.jpgLoksins eru sleðarnir komnir í búðina og eru allir velkomir að skoða.  Einnig erum við með svolítið af öðrum vörum svo sem jakka, buxur, aukahluti ofl. Ath. erum með snjóflóða-ýla á góðu verði.

 
12 nýjir Arctic Cat 2010 PDF Prenta Netfang

Þetta eru ekki sögusagnir að 30 nýjir Arctic Cat séu komnir til landsins.  12 nýjir Arctic Cat M8 sno pro og HCR voru afhentir til Akureyrar í dag föstudaginn 8. janúrar 2010.  Eftir helgi verða síðan 14. til viðbótar leystir úr tolli og verða væntanlega komnir búðina og verða til sýnis n.k. miðvikudag. Nánar síðar.img_3975.jpg

 
Flottur sleði frá Arctic Cat PDF Prenta Netfang

Hver vildi ekki hafa einn svona til að leika sér á ?  Arctic Cat sno pro 500 er einn flottasti Sno Cross sleðinn á markaðnum í dag.  Hann fær frábæra dóma og hafa atvinnumenn eins og Tucker Hibbert keyrt þennan sleða á X-games. Erlendir sleða gúrúar segja "If you can´t have fun on this sled, get out of this sport now" Látið ykkur dreyma og draumurinn gæti ræst. Winksnopro_500-2.jpg

 
<< Byrja < Bakka 1 2 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 9 af 11

Arctic Sport | Höfðabakka 3 | 110 Reykjavik | Tel: +354 578-0820 | Tel: +354 578-0822 | arcticsport (at) arcticsport.is